Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. nóvember 2021 13:30
Elvar Geir Magnússon
Danilo frá í tvo mánuði
Danilo verður frá í tvo mánuði.
Danilo verður frá í tvo mánuði.
Mynd: EPA
Juventus hefur staðfest að varnarmaðurinn Danilo verði frá í að minnsta kosti átta vikur. Hann er meiddur í vinstra læri.

Danilo, sem er 30 ára, varð fyrir meiðslunum í fyrri hálfleik í leiknum gegn Lazio á laugardag.

Danilo er fastamaður í liði Juve og hefur spilað fjórtán leiki á tímabilinu. Aðeins Leonardo Bonucci, Manuel Locatelli og Wojciech Szczesny hafa spilað fleiri mínútur fyrir Juve.

Danilo gekk í raðir Juventus fyrir 37 milljónir punda frá Manchester City árið 2019. Hann hefur spilað 91 leik fyrir Juve.

Juventus er í áttunda sæti ítölsku A-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner