21.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Enginn vill kaupa Musiala"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Goðsagnir Bayern Munchen keppast um að brjóta Jamal Musiala niður um þessar mundir. Uli Höness, heiðursforseti Bayern, sagði á dögunum að hann efaðist um að Musiala myndi komast í sitt gamla form aftur.
Musiala sneri aftur á völlinn í 1-1 jafntefli Bayern gegn Köln í gær. Hann hafði verið fjarverandi í tvo mánuði eftir að hafa greinst með taugasjúkdóm.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarmaður hjá Bayern, segist vera hræddur um að Bayern sitji uppi með hann.
„Reynslan af slíkum meiðslum bendir til þess að það verði erfitt fyrir hann að ná því stigi sem hann var áður. Há laun hans eru ekki lengur sjálfbær. Enginn vill kaupa hann við þessar aðstæður. Umræðan hefur ekki átt sér stað ennþá, en við verðum að hugsa um fjármálin.“