Fotbolti.net
21.11.26 - 17:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Staðfesti áhuga á Endrick - Rabiot í forgangi

Staðfesti áhuga á Endrick - Rabiot í forgangi
Canon

Mynd: EPA

Gerry Cardinale forseti AC Milan ræddi meðal annars um Endrick og Adrien Rabiot í viðtali í dag.
Útilokar að Endrick fari frá Real Madrid
TENGT EFNI

Útilokar að Endrick fari frá Real Madrid

Milan hefur verið sterklega orðað við Endrick, framherja Real Madrid og brasilíska landsliðsins sem fær lítinn spiltíma vegna mikillar samkeppni, upp á síðkastið og staðfesti Cardinale áhuga félagsins.

„Að mínu mati er Endrick einn af bestu leikmönnum í heimi í sinni stöðu - ef ekki sá besti. Við munum sjá hvað verður mögulegt að gera í janúar," sagði Cardinale, en José Mourinho þjálfari Real Madrid segir að tímabilið sé langt og að hann vilji alls ekki missa Endrick úr hópnum.

„Janúarglugginn er aldrei auðveldur, maður verður að vera tilbúinn að grípa tækifærin þegar þau gefast. Eina sem ég get lofað er að við munum ekki kaupa inn neinn leikmann sem við erum ekki sannfærðir um að geti bætt leikmannahópinn.

„Við munum kaupa leikmenn en við munum gera það á sniðugan hátt og í nánu samstarfi við Rúben (Amorim, þjálfara Milan)."


Þá ræddi Cardinale einnig um franska miðjumanninn Rabiot sem er 31 árs gamall og með eitt og hálft ár eftir af samningi.

„Hann er einn af mínum uppáhalds leikmönnum og við erum að vinna í nýjum samningi. Ég ber mjög mikla virðingu fyrir honum og fjölskyldu hans. Við erum í viðræðum og vonandi kemur eitthvað gott úr þeim. Hann er einn af okkar mikilvægustu leikmönnum."

Milan er þá að ráða Markus Krösche sem nýjan yfirmann fótboltamála og hefur hann störf eftir áramót, en ráðningin hefur ekki verið staðfest opinberlega.
Staðfesti áhuga á Endrick - Rabiot í forgangi
Canon

Mynd: EPA

Staðfesti áhuga á Endrick - Rabiot í forgangi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.