Fotbolti.net
22.11.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Annar leikmaðurinn í sögu Roma til að skora yfir 25 mörk

Annar leikmaðurinn í sögu Roma til að skora yfir 25 mörk
Canon

Mynd: EPA

Hollendingurinn markheppni Donyell Malen setti fernu í stórsigri AS Roma gegn Parma í gær og hefur þar með skorað 26 deildarmörk frá komu sinni til félagsins í síðasta janúarglugga.
Ítalía: Malen setti fernu
TENGT EFNI

Ítalía: Malen setti fernu

Malen hefur í heildina skorað 31 mark og gefið 8 stoðsendingar í 35 leikjum í öllum keppnum - þar af eru 26 mörk og 5 stoðsendingar í 29 leikjum í Serie A.

Malen hefur þegar skrifað sig í sögubækur Roma en hann er aðeins annar leikmaður í 99 ára sögu félagsins til að skora meira en 25 deildarmörk á dagatalsári.

Goðsögninni Francesco Totti, sem lék aftar á vellinum heldur en Malen, tókst ekki að afreka þetta, heldur var það Pedro Manfredini sem skoraði 26 mörk dagatalsárið 1960.

Malen er því á góðri leið með að verða fyrsti leikmaður í sögu félagsins til að skora 30 deildarmörk á sama árinu.

Roma, sem er í toppbaráttu í deildinni, á eftir að spila við Monza, Bologna, Lazio og Juventus fyrir jólafrí.
Annar leikmaðurinn í sögu Roma til að skora yfir 25 mörk
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter11+1528
4Como12+1026
5Milan11+1024
6Frosinone11+920
7Napoli12+518
8Juventus11+318
9Bologna11+217
10Cagliari12-716
11Atalanta11-314
12Torino12-314
13Genoa11-513
14Lecce12-1310
15Fiorentina11-89
16Parma12-128
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.