Fotbolti.net
22.11.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fékk gæsahúð gegn Arsenal: Snerist um hugrekki

Fékk gæsahúð gegn Arsenal: Snerist um hugrekki
Canon

Mynd: EPA

Matthias Jaissle stjóri Newcastle United var stoltur af frammistöðu lærlinga sinna í 2-2 jafntefli gegn Englandsmeisturum Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær.
England: Madueke bjargaði stigi fyrir meistarana
TENGT EFNI

England: Madueke bjargaði stigi fyrir meistarana

Arsenal var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik og leiddi með einu marki í leikhlé þrátt fyrir að hafa fengið færi til að skora fleiri.

Jaissle gerði tvöfalda skiptingu í leikhlé og mættu heimamenn í liði Newcastle tvíefldir út í seinni hálfleikinn og tóku yfir leikinn. Þeir yfirspiluðu Englandsmeistarana og snéru stöðunni við áður en Noni Madueke bjargaði stigi fyrir Arsenal.

„Þetta er stórt stig fyrir okkur en okkur líður næstum eins og þetta séu tvö töpuð stig miðað við hvernig seinni hálfleikurinn spilaðist. Þegar allt kemur til alls þá held ég að þetta séu sanngjörn úrslit. Við getum byggt á þessari frammistöðu," sagði Jaissle að leikslokum, en Newcastle er aðeins komið með 13 stig eftir 11 umferðir.

Jaissle gerði tvöfalda skiptingu í leikhlé en segist ekki hafa verið að breyta miklu í taktík liðsins.

„Ég breytti ekki miklu taktísktlega séð, þetta snerist bara um að sannfæra leikmenn um að vera hugrakkir og spila til að sigra. Strákarnir voru ákafir og aggressívir í síðari hálfleik og spiluðu virkilega, virkilega vel. Þetta sannar fyrir okkur að allt er mögulegt, sérstaklega á heimavelli með þennan frábæra stuðning.

„Orkan í seinni hálfleiknum var svo góð að ég fékk gæsahúð.

„Við viljum alltaf spila svona og sýna þetta orkustig og samheldni. Þessi frammistaða ætti að veita okkur innblástur og sjálfstraust fyrir næstu leiki."
Fékk gæsahúð gegn Arsenal: Snerist um hugrekki
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Bournemouth11+418
5Liverpool10+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.