Fotbolti.net
21.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ekki hrifinn af uppátæki Ronaldinho - „Ógeðslegt"

Ekki hrifinn af uppátæki Ronaldinho - „Ógeðslegt"
Canon

Mynd: EPA

Hinn 46 ára gamli Ronaldinho sneri aftur á völlinn á dögunum, rúmum áratrug eftir að skórnir fóru á hilluna.

Hann spilaði fyrri hálfleikinn fyrir Ravenna í 2-0 sigri á Forli í ítölsku C-deildinni fyrr í þessum mánuði. Antonio Cassano, sem spilaði með liðum á borð við Roma, Inter, AC Milan og Real Madrid var alls ekki hrifinn af því að sjá Ronaldinho aftur á vellinum.
Ronaldinho stóð sig vel í sigri
TENGT EFNI

Ronaldinho stóð sig vel í sigri

„Ég vil byrja á því að segja að ég virði Ronaldinho mikils, sem persóna og leikmaður. Hann er einn af fimm bestu leikmönnum sögunnar með Messi, Maradona og Ronaldo, kannski Pele," sagði Cassano.

„En það sem hann gerði er ógeðslegt. 46 ára og í þessum aðstæðum. Hvað á hann að gera? Ég skildi þetta ekki. Gerði hann þetta út af sambandinu við Cipriani, vini hans, og því þeir gáfu honum mikinn pening? Ég veit það ekki. Þetta var fáránlegt leikrit."

Cassano sagði að hann myndi ekki þyggja 20 milljónir evra til að snúa aftur á völlinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.