22.11.26 - 23:22
Ívan Guðjón Baldursson
Ósáttur Neville sló sig utan undir í beinni útsendingu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gary Neville var meðal fótboltasérfræðinga Sky Sports sem horfðu saman á klassískan stórleik Liverpool gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.

TENGT EFNI
Roy Keane brjálaður: Klöppuðu fyrir rusli
Man Utd steinlá gegn Liverpool og var Neville, sem lék í varnarlínu United allan ferilinn, ekki sáttur með varnarleik liðsins.
„Ég sé aldrei neinn þessara leikmanna vera á tánum, vera tilbúnir að ráðast á boltann. Þeir eru bara svona," sagði Neville og þóttist frjósa áður en hann byrjaði að slá sjálfan sig utan undir.
„Þeir eru bara svona eins og þeir viti ekki hvað er í gangi. Vaknaðu!" hélt Neville áfram og sló sig utan undir og uppskar mikil hlátrasköll frá Jamie Carragher.
„Vaknaðu! Þú spilar fyrir Manchester United!"

Gary Neville slapping himself in the face whilst explaining what Manchester United defenders don't do.
— Carter ???????????????????????????? (@SwansCymru) November 22, 2026
#mufc https://t.co/SURRkSVgP6
Bruh! Man United players have traumatised Gary Neville. He is literally slapping himself on Sky Sports ???????????? https://t.co/b1uiOLEf3t
— Jaja (@JajaBreed) November 22, 2026