22.11.26 - 13:50
Brynjar Ingi Erluson
Cecilía lagði upp mark og hélt hreinu - Emelía með tvennu

Cecilía hélt hreinu í sjöunda sinn

Mynd: EPA

Emelía skoraði tvennu fyrir Köge

Mynd: HB Köge

Cecilía hélt hreinu í sjöunda sinn

Mynd: EPA

Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt hreinu í sjöunda sinn á tímabilinu og gerði gott betur en það þegar hún lagði upp mark í stórsigri Inter á Ternana, 4-0, í dag.
Cecilía og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru að vanda í byrjunarliði Inter.
Í síðustu umferð fékk Cecilía á sig sín fyrstu mörk í deildinni á tímabilinu, en þá fékk hún þrjú mörk á sig á lokamínútunum í afar óvæntu tapi.
Inter var hins vegar ekki lengi að hrista af sér vonbrigðin og vann sannfærandi sigur í dag.
Cecilía hélt hreinu í sjöunda sinn í átta deildarleikjum og gerði sér lítið fyrir og lagði upp fjórða og síðasta mark Inter, sem Brittany Raphino skoraði.
Með sigrinum er Inter komið með 19 stig í öðru sæti deildarinnar eftir átta leiki, fimm stigum á eftir toppliði Roma.
Emelía Óskarsdóttir var einnig á skotskónum í dag og skoraði tvívegis þegar Köge vann öruggan 5-1 sigur á Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni.
Emelía skoraði fyrstu tvö mörk leiksins í fyrri hálfleik og kom Köge í þægilega forystu. Liðið trónir á toppi deildarinnar með 41 stig, sjö stigum meira en næsta lið.
Emelía hefur nú skorað níu mörk á tímabilinu og er þriðja markahæst í deildinni.