Fotbolti.net
22.11.26 - 15:10
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Börsungar komu til baka og fögnuðu sigri - Yamal klúðraði víti

Yamal lagði upp mark fyrir Fermín

Yamal lagði upp mark fyrir Fermín

Canon

Mynd: EPA

Barcelona 3 - 2 Villarreal
0-1 Tajon Buchanan ('5 )
0-2 Tani Oluwaseyi ('7 )
0-2 Lamine Yamal ('23 , Misnotað víti)
1-2 Gerard Martin ('57 )
2-2 Fermin Lopez ('61 )
3-2 Pau Navarro ('67 , sjálfsmark)
Rautt spjald: Pau Navarro, Villarreal ('90)
Spánarmeistarar Barcelona gerðu sér heldur betur erfitt fyrir í 3-2 endurkomusigri á Villarreal á Camp Nou í La Liga í dag.

Heimamenn fengu sannkallaða martraðarbyrjun og voru komnir 2-0 undir eftir aðeins sjö mínútna leik.

Tajon Buchanan og Tani Oluwaseyi skoruðu mörk Villarreal og ekki batnaði ástandið hjá Barcelona þegar liðið fékk vítaspyrnu á 22. mínútu. Lamine Yamal steig á punktinn en skaut fram hjá markinu.

Villarreal leiddi því 2-0 í hálfleik, en Börsungar náðu að stilla saman strengi í leikhléinu og mættu mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik.

Gerard Martin minnkaði muninn á 57. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Pedri, áður en hinn sjóðandi heiti Fermín Lopez jafnaði metin eftir undirbúning Yamal.

Aðeins sex mínútum síðar var endurkoman fullkomnuð. Yamal átti þá laglega hælsendingu á Eric Garcia sem kom boltanum fyrir markið, þar sem Pau Navarro varð fyrir því óláni að stýra honum í eigið net. Vont varð verra fyrir Navarro sem sá síðan rauða spjaldið undir lok leiksins.

Villarreal hafði þar með kastað frá sér tveggja marka forystu á skömmum tíma og Barcelona fagnaði sínum þriðja deildarsigri í röð eftir ævintýralega endurkomu.

Börsungar eru nú með 36 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum á undan erkifjendunum í Real Madrid, á meðan Villarreal situr í níunda sæti með 15 stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona13+3333
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid12+1328
4Betis13+527
5Real Sociedad12+122
6Sevilla13-219
7Villarreal13+418
8Athletic12+316
9Alaves13016
10Espanyol13015
11Deportivo13-115
12Racing Santander12-1314
13Celta13-113
14Vallecano12-712
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Valencia13-1112
18Levante12-511
19Elche12-610
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.