22.11.26 - 13:18
Brynjar Ingi Erluson
Icardi vill snúa aftur í ítalska boltann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski framherjinn Mauro Icardi stefnir á að snúa aftur í ítalska boltann á næstu mánuðum, en hann er sem stendur án félags.
Icardi er 33 ára gamall og hefur verið án félags síðan samningur hans við Galatasaray rann út í sumar.
Hann gerði áður garðinn frægan með Sampdoria, Inter og Paris Saint-Germain, en nú hefur hann sett stefnuna á að snúa aftur til Ítalíu.
Samkvæmt TYC Sports hafnaði Inter því að fá hann aftur til félagsins í sumar, en Icardi hefur nú sett sig í samband við Juventus og boðið félaginu þjónustu sína.
Framherjinn er tilbúinn að sætta sig við lægri laun og aukahlutverk hjá Juventus, sem er sagt íhuga alvarlega að fá hann til að auka breiddina í sóknarlínunni.
Icardi var iðinn við kolann hjá Galatasaray og skoraði 77 mörk í 134 leikjum, eftir að hafa áður raðað inn mörkum á Ítalíu. Hann gæti því reynst Juventus góður liðsstyrkur, jafnvel þótt honum væri aðeins ætlað aukahlutverk.