22.12.04 - 12:04
Magnús Már Einarsson
Almeyda til WBA (Staðfest)




Bryan Robson hefur fengið til sín fyrsta leikmanninn síðan að hann gerðist stjóri WBA. Robson hefur fengið miðjumanninn Matias Almeyda frítt frá Brescia en Almeyda samdi við ítalska liðið um að rifta samningi sínum.
Almeyda sem er 31 árs Argentínumaður byrjaði feril sinn með River Plate en í Evrópu hefur hann leikið með Sevilla, Lazio og Parma auk Brescia.
