Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. janúar 2023 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Benzema kominn með 228 mörk fyrir Real Madrid - Jafnaði Raul
Karim Benzema
Karim Benzema
Mynd: EPA
Karim Benzema, framherji Real Madrid, er nú annar markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi ásamt Raul Gonzalez.

Frakkinn skoraði fyrra mark Madrídinga í 2-0 sigrinum á Athletic í Baskalandi í gær og er nú kominn með 228 mörk fyrir félagið.

Hann jafnaði þar með Raul Gonzalez og eru þeir tveir í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn Real Madrid í sögunni.

Aðeins einn leikmaður er þeim fremri en það er auðvitað portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo.

Hann skoraði 311 mörk á níu árum sínum hjá Real Madrid og ólíklegt að Benzema eigi roð í það en samningur hans rennur út á næsta ári og ekki talið líklegt að hann framlengi við félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner