Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 23. febrúar 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lukaku með skýr skilaboð: Ég er bestur
Romelu Lukaku fagnar með Antonio Conte
Romelu Lukaku fagnar með Antonio Conte
Mynd: Getty Images
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku skoraði tvö og lagði upp eitt í 3-0 sigri Inter á nágrönnum þeirra í Milan um helgina en hann fagnaði á viðeigandi hátt.

Lukaku er kominn með 23 mörk í 30 leikjum fyrir Inter á þessari leiktíð í öllum keppnum en honum lenti saman við sænska framherjann Zlatan Ibrahimovic í leik liðsins gegn Milan í ítalska bikarnum á dögunum.

Zlatan var rekinn af velli í þeim leik sem Inter vann og var því búist við miklum fjandskap þegar liðin mættust um helgina.

Lukaku, eins og áður segir, skoraði tvö og lagði upp eitt í leiknum og fagnaði með því að öskra hátt og snjallt, „Ég er bestur," .

Inter er á toppnum í ítölsku deildinni með 53 stig, fjórum stigum meira en Milan sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner