Fotbolti.net
23.06.23 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Chelsea þurfti að útskýra áhugann frá Sádi-Arabíu

Viðskiptamaðurinn Todd Boehly tók yfir Chelsea í fyrra með fyrirtækinu Clearlake.

Viðskiptamaðurinn Todd Boehly tók yfir Chelsea í fyrra með fyrirtækinu Clearlake.

Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin óskaði nýverið eftir að fá skriflega staðfestingu á því að ríkissjóður Sádi-Arabíu væri ekki hluti af yfirtöku Todd Boehly og Clearlake Capital á Chelsea. Þetta herma heimildir Telegraph.
Önnur félög hafa kallað eftir rannsókn á málum Chelsea í ljósi þess að margir af leikmönnum liðsins eru mögulega á leið til Sádi-Arabíu. Hakim Ziyech, Kalidou Koulibaly, Edouard Mendy og Pierre-Emerick Aubameyang gætu allir verið seldir til Sádi-Arabíu og þá er einnig möguleiki á því að Callum Hudson-Odoi og Romelu Lukaku fari þangað.

Chelsea hefur eytt gríðarlega háum fjárhæðum á síðustu mánuðum til að umbreyta leikmannahóp sínum og þarf í sumar að selja leikmenn til að reyna að standast fjármálareglur. Chelsea gæti fengið á milli 50-100 milljónir punda frá Sádi-Arabíu fyrir þessa leikmenn sem voru nefndir hér að ofan, en það myndi hjálpa félaginu þar sem félög í Evrópu virðast ekki tilbúin að borga fyrir þessa leikmenn.

En þrátt fyrir að keppinautar hafi lýst yfir áhyggjum af stöðu mála þá lítur enska úrvalsdeildin á það þannig að ekkert furðulegt sé í gangi eftir að hafa fengið staðfestingar á því frá Chelsea.

Ríkissjóður Sádí-Arabíu, PIF, á stærstu félögin í Sádi-Arabíu en fyrirtækið Clearlake Capital, sem var stór hluti af eignartöku Chelsea í fyrra, hefur verið í samstarfi við PIF og fengið fjárfestingu frá sjóðnum. Enska úrvalsdeildin skoðaði þessi tengsl í fyrra þegar eigendaskiptin gengu í gegn en Boehly og Clearlake sönnuðu það fyrir ensku úrvalsdeildinni að PIF væri ekki hluti af eigendahópnum og kæmi ekki nálægt yfirtökunni.

Þessi áhugi Sádi-Arabíu á leikmönnum Chelsea hefur vakið upp grunsemdir um að Sádi-Arabía sé í samstarfi við Chelsea til að hjálpa félaginu að standast fjármálareglur, en Lundúnafélagið heldur því fram að þessi mögulegu félagaskipti leikmannana séu eingöngu út af vinsældum þeirra og félagsins í Mið-Austurlöndum.

Peningurinn í fótboltanum í Sádi-Arabíu er gríðarlegur eftir að ríkissjóðurinn fór að fjárfesta meira í honum. Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa mikið verið að nota íþróttir fyrir hvítþvott á landinu, til þess að bæta hræðilegt orðspor landsins. Það segir sig sjálft að ef leikmenn eins og Benzema, Ronaldo, Kante og Neves eru allir að spila í Sádi-Arabíu að þá muni slæmt orðspor landsins batna að einhverju leyti.
Úr leik hjá Chelsea á síðustu leiktíð.

Úr leik hjá Chelsea á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.