23.07.26 - 16:01
Kári Snorrason
Eiganda Hull nóg boðið og gefur vísbendingar um næstu kaup

Ilicali lét í sér heyra á samfélagsmiðlinum X.

Mynd: Hull City

Hull tryggði sig í ensku úrvalsdeildina með sigri í umspili í vor.

Mynd: EPA

Acun Ilicali, eigandi nýliða Hull, segir sér vera nóg boðið af sögusögnum um leikmenn sem félagið hafi átt að reyna að fá til sín.
Í færslu á samfélagsmiðlinum X hafnaði hann þeim fréttum að Hull hefði verið hafnað af fjölmörgum leikmönnum.
Að hans sögn eiga slíkar sögur sér enga stoð og eru nafn og orðspor félagsins einfaldlega notuð til að skapa athygli.
Til að binda enda á frekari getgátur birti hann síðar vísbendingar um þá leikmenn sem Hull er í raun að reyna að fá til félagsins.

Í færslunni taldi hann upp Jack Butland, Oscar Zambrano og Matt Targett með hakmerki við nöfn þeirra en það eru leikmenn sem félagið hefur sótt.
Því næst setti hann upp tölurnar fjögur til ellefu með fánum landa og prósentutölum við hliðina á þeim til að gefa til kynna hversu nálægt Hull væri því að semja við leikmenn frá löndunum.
Meðal þeirra sem birtust á myndinni voru gríski og sænski fáninn merktir með 90 prósent líkum, en fánar Ástralíu, Króatíu og Portúgals með 80 prósent.
Félagið er komið langt í viðræðum um kaup á gríska markverðinum Konstantinos Tzolakis, Japananum Hidemasa Morita og Svíanum Elliot Stroud.

Dear Hull City family,
— Acun Il?cal? (@acunilicali) July 23, 2026
We are reading dozens of false transfer rumors in many places.
We are disturbed by the claims that we have been rejected and by the use of our club's name to gain attention. We have been working intensively for two months. I believe we will build a team…