23.07.26 - 15:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haugland búinn að finna sér lið í Noregi (Staðfest) - Elvar klárar tímabilið á Húsavík

Sebastian Haugland

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Baldvinsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sebastian Haugland

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norski framherjinn Sebastian Haugland yfirgaf Þór fyrr í sumar og er hann kominn með félagaskipti til norska félagsins Ranheim sem spilar í næstefstu deild. Samkvæmt heimildum TV2 hafði Haugesund einnig áhuga á kappanum.
Haugland, sem er þrítugur, skoraði sigurmark Þórs gegn Fram í 3. umferð Bestu deildarinnar en í landsleikjahléinu varð ljóst að hann myndi ekki klára tímabilið á Akureyri og hélt hann heim til Noregs.
Ranheim er um miðja deild í Noregi og á næst leik gegn Sogndal á sunnudag.

TENGT EFNI
Víkingur lánar Þorra í Þór (Staðfest)
Þá eru frekari tíðindi af Þór því Elvar Baldvinsson (1997) hefur fengið félagaskipti í Völsung og mun klára tímabilið með Húsvíkingum. Elvar er uppalinn hjá Völsungi en vinstri bakvörðurinn samdi við Þór í vetur.
Haugland lék níu leiki fyrir Þór og Elvar kom við sögu í fimm leikjum.
Völsungur situr í 11. sæti Lengjudeildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti þegar átta umferðir eru eftir. Næsti leikur liðsins verður gegn Grindavík á föstudagskvöld.