23.07.26 - 12:43
Kári Snorrason
Tzolis til Arsenal (Staðfest) - Góðvinur Ísaks Bergmanns

Skrifar undir fimm ára samning við Englandsmeistarana.

Mynd: Arsenal

Arsenal hefur fest kaup á gríska kantmanninum Christos Tzolis. Hann skrifar undir fimm ára samning og er talið að kaupverðið nemi um 34 milljónir punda.
Tzolis er 24 ára gamall og kom með beinum hætti að 51 marki í 52 leikjum með Club Brugge á síðustu leiktíð (22 mörk og 29 stoðsendingar).

TENGT EFNI
Ísak missir herbergisfélagann til Belgíu - „Á eftir að sakna þín extra mikið"
Hann er góðvinur landsliðsmannsins Ísaks Bergmanns Jóhannessonar en þeir léku saman hjá Dusseldorf fyrir rúmum tveimur árum.
Þar voru þeir herbergisfélagar en Tzolis var á láni frá Norwich. Hann var á mála hjá enska félaginu í þrjú ár. Í fyrra reyndi Crystal Palace að fá Tzolis en Club Brugge hafnaði tilboði félagsins.