23.08.26 - 12:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
134 ára gömul hefð í hættu hjá Liverpool

Curtis Jones.

Mynd: EPA

Jayden Danns getur haldið hefðinni á lífi.

Mynd: EPA

Curtis Jones.

Mynd: EPA
Brottför Curtis Jones frá Liverpool til Inter Milan gæti haft meiri þýðingu fyrir félagið en kannski virtist í fyrstu.
Jones gekk formlega til liðs við Inter á föstudag eftir að félögin komust að samkomulagi um kaup sem geta numið allt að 35 milljónum punda. Jones var óánægður með skort á spiltíma hjá Liverpool og sá því tækifæri til að fá nýtt upphaf á Ítalíu.

Brottför hans skilur hins vegar eftir ákveðið tómarúm hjá Liverpool. Í fyrsta sinn frá stofnun félagsins árið 1892 er raunverulegur möguleiki á því að Liverpool ljúki tímabili án þess að tefla fram leikmanni sem er fæddur í borginni. Það er Telegraph sem tekur þessa ótrúlegu staðreynd saman.
Söngurinn „a Scouser in our team“ hefur verið hluti af menningu stuðningsmanna Liverpool í áratugi, en nú gæti sú hefð verið í hættu.
Jones lék 228 leiki fyrir Liverpool eftir að hafa komið upp úr akademíu félagsins. Hann varð enskur meistari tvisvar, vann FA-bikarinn, deildabikarinn tvisvar og heimsmeistarakeppni félagsliða. Hann skoraði einnig nokkur eftirminnileg mörk, þar á meðal í Merseyside-slagnum gegn Everton árið 2020.
Hann var hluti af langri röð heimamanna sem hafa klæðst rauðu treyjunni. Allt frá Philip Kelly árið 1892 hafa leikmenn frá Liverpool-borg verið í liði félagsins. Meðal þeirra sem síðar fylgdu voru Jack Balmer, Steve McManaman, Robbie Fowler, Jamie Carragher, Steven Gerrard, Trent Alexander-Arnold og Jones sjálfur.
Jon Flanagan hélt hefðinni á lífi eftir brottför Gerrard og áður en Trent Alexander-Arnold tók við keflinu. Nú er Jones farinn og enginn augljós arftaki stendur tilbúinn.
Jayden Danns gæti þó haldið hefðinni gangandi. Framherjinn er fæddur í Liverpool og er enn á mála hjá félaginu, þótt meiðsli hafi hægt á framförum hans. Liverpool hefur einnig miklar væntingar til ungra leikmanna úr akademíunni, en enginn þeirra virðist enn vera tilbúinn til að taka fast sæti í aðalliðinu.
Brottför Jones gæti því markað markað endalok 134 ára samfelldrar hefðar þar sem að minnsta kosti einn leikmaður fæddur í Liverpool hefur komið við sögu í aðalliði félagsins á hverju tímabili.