Fotbolti.net
23.08.26 - 22:50
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Chris Brazell: Tæknilega séð er ég ekki aðalþjálfari

Auglýsing
Chris Brazell, þjálfari Vals

Chris Brazell, þjálfari Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Blendnar tilfinningar, fyrst og fremst er alltaf svekkjandi að tapa leik,“ sagði Chris Brazell, þjálfari Vals, eftir 2-0 tap gegn Víkingum í Fossvoginum í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Valur

„Mér finnst sérstaklega, ef horft er til stöðunnar á hópnum, þá spiluðum við góðan fyrri hálfleik á útivelli, gegn liðinu sem er efst í töflunni. Við misstum tökin á leiknum í korterskafla í seinni hálfleik og við þurftum að gjalda fyrir það. Á sama tíma er ég raunsær, þegar ég horfi til stöðunnar á hópnum, en eins og ég segi strákarnir lögðu sig alla fram. Liðið sem er í öðru sæti deildarinnar tapaði líka 2-0 hér, við verðum ekki þeir síðustu til að tapa leik í Víkinni. Blanda tilfinninga, vonbrigði í bland við raunsæi, við þurfum að halda áfram og fara vel inn í næsta leik,“ hélt hann áfram. 

Eftir umferðina eru Valsarar í 8. sæti deildarinnar sem veðrur að teljast vond staða fyrir félag eins og Val. Liðið hefur aðeins unnið einn leik síðan Hermanni Hreiðarssyni var vikið úr stöðu aðalþjálfara og Brazell tók við, aðspurður hvort að Valsarar ættu að hafa áhyggjur af stöðu félagsins segir hann:

„Það er ekki mitt að svara því. Minn fókus er á liðinu, og að díla við núverandi ástand. Ég er ekki ráðinn til lengri tíma og tæknilega séð er ég ekki aðalþjálfari, ég er sá sem heldur utan um hópinn og auðvitað er lykillinn fyrir okkur á þessu tímabili að enda það vel og að sigla skipinu örugglega heim og það er það sem við erum búnir að reyna að gera.“

Brazell talaði mikið um að vera raunsær vegna þess hver staðan er á hópnum hans en hver er nákvæmlega þessi staða sem hann vísar svo mikið í?

„Ef ég á að vera hreinskilinn, erfið. Ég held að allir sjái geti séð það. Það er ekki bara núna, þetta hefur verið staðan síðustu vikur og mér finnst liðið hafa gert vel, og þjálfarateymið, við höfum ekki nýtt okkur það sem afsökun. Við höfum farið inn í alla leiki til að vinna þá, og við gerðum slíkt hið sama í kvöld. En þegar ég sest niður eftir leiki þá er ég raunsær með tilliti til stöðunnar á hópnum og vandamálið okkar er að síðustu vikur höfum við verið að keyra á litlum hóp, við erum með einn minnsta hóp í deildinni og við erum að gjalda fyrir það núna af því að við höfum verið að spila mikið af leikjum.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilararnum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.