Fotbolti.net
23.08.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Var Shaw að skjóta á þjálfarateymið?

Var Shaw að skjóta á þjálfarateymið?
Canon

Mynd: EPA

Man Utd byrjaði tímabilið mjög illa en liðið tapaði 2-0 gegn nýliðum Hull í gær.
Fyrra markið kom eftir hornspyrnu og það seinna eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu.

Luke Shaw, varnarmaður Man Utd, var ekki sáttur í leikslok og vildi meina að föstu leikatriðin hafi verið illa æfð.

„Þetta er mjög svekkjandi, þetta eru ekki við. Við áttum von á föstu leikatriðunum. Sem hópur gætum við undirbúið okkur betur," sagði Shaw.

„Það vantaði upp á hjá okkur að getað skorað mörk og reyna að berja okkur leið inn í leikinn aftur. Það eru engar afsakanir. Þetta er bara byrjunin, leikmenn eru að finna sitt gamla form aftur. United á að mæta Hull og vinna, með fullri virðingu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.