23.08.26 - 23:39
Brynjar Ingi Erluson
Vicario fór meiddur af velli og varamarkvörðurinn á förum

Mynd: EPA

Perin er á leið til Palermo

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lánsdvöl ítalska markvarðarins Guglielmo Vicario hjá Juventus fór ekki vel af stað, en hann þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í 1-0 sigri á Frosinone í kvöld.
Vicario gekk í raðir Juventus á láni frá Tottenham fyrir nokkrum dögum og fór beint í byrjunarliðið.
Hann þurfti að fara af velli undir lokin vegna meiðsla en Mattia Perin kom inn á í hans stað og hjálpaði Juventus að sigla sigrinum í höfn.
Skömmu eftir leik greindi Fabrizio Romano hins vegar frá því að Perin væri á förum frá félaginu.
Hann er að ganga í raðir Palermo í ítölsku B-deildinni og mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum.
Kamil Grabara, markvörður Wolfsburg, er talinn líklegastur til að leysa Perin af hólmi.
Luciano Spalletti, þjálfari Juventus, á von á því að Vicario verði með gegn Parma um næstu helgi, en hann segir hann aðeins hafa fengið krampa og að læknateymið hafi ekki viljað taka áhættu. Ef hann verður ekki klár er liðið með hinn 36 ára gamla Carlo Pinsoglio til taks.

???????????? Palermo have agreed deal to sign Mattia Perin as new goalkeeper from Juventus.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 23, 2026
Medical booked early this week and all set to be completed with Kamil Grabara favorite to become new Juventus backup GK. pic.twitter.com/wzDstmAjWY

Perin er á leið til Palermo

Mynd: EPA