23.10.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Branko Strupar til Dinamo Zagreb. (Staðfest)

Strupar fagnar marki fyrir Derby.


Strupar fagnar marki fyrir Derby.

Sóknarmaðurinn Branko Strupar sem meðal annars hefur spilað með Derby og Genk hefur skrifað undir tveggja ára samning við Dinamo Zagreb í heimalandi sínu, Króatíu. Strupar sem er orðinn 34 ára skoraði 16 mörk í 32 leikjum hjá Derby en hefur verið að berjast við erfið meiðsli.
