Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 24. janúar 2022 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sky: Tottenham og Wolves að ná samkomulagi
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky Sports þá eru Tottenham og Wolves nálægt þvi að komast að samkomulagi um kaupverð á Adama Traore.

Traore sem leikur með Wolves hefur verið sterklega orðaður við Tottenham að undanförnu og sagt er að Úlfarnir hafi neitað 15 milljónum punda tilboði Tottenham í leikmanninn.

Sagt er að Wolves hafi viljað 25 milljónir fyrir hann en nú virðast félögin hafa komist að samkomulagi um 20 milljón punda verðmiða.

Traore er 25 ára gamall og er uppalinn hjá Barcelona, hann hefur leikið með Aston Villa og Middlesbrough áður en hann gekk til liðs við Wolves árið 2018.
Athugasemdir
banner
banner