Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 24. febrúar 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Firmino vekur reiði stuðningsmanna - 'Lækaði' mynd Richarlison
Firmino og Richarlison eru saman í brasilíska landsliðinu.
Firmino og Richarlison eru saman í brasilíska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino, sóknarmaður Liverpool, hefur vakið reiði stuðningsmanna Liverpool fyrir að setja 'læk' við færslu hjá Richarlison, framherja Everton, á Instagram.

Richarlison skoraði snemma þegar Everton vann 0-2 sigur á Liverpool um síðustu helgi. Þetta var fyrsti sigur Everton á Anfield í tæp 22 ár. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði seinna mark Everton í leiknum af vítapunktinum.

Richarlison birti mynd af sér á Instagram þar sem hann fagnaði marki sínu á Anfield.

Firmino, sem er búinn að skora sex mörk í 35 leikjum á tímabilinu, setti 'læk' við færslu landa síns og það eru margir stuðningsmenn Liverpool ekki sáttir með.

Hér að neðan má sjá færsluna sem Firmino 'lækaði' og dæmi um viðbrögð stuðningsmanna Liverpool. Það hefur ekki gengið vel hjá Englandsmeisturunum á þessari leiktíð og er liðið sem stendur í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.







Athugasemdir
banner
banner
banner