Fotbolti.net
24.02.21 - 13:48
Magnús Már Einarsson

Jota byrjaður að æfa á ný

Jota á æfingunni í dag.

Jota á æfingunni í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Diogo Jota er byrjaður að æfa á ný með Liverpool eftir rúmlega tveggja mánaða fjarveru.

Portúgalinn meiddist gegn Midtjylland í Meistaradeildinni í desember og hefur verið frá keppni síðan þá.
Endurkoma hans eru góðar fréttir fyrir Liverpool sem hefur gengið illa að skora að undanförnu.

Jota hafði skorað níu mörk í sautján leikjum með Liverpool áður en hann meiddist.

Næsti leikur Liverpool er gegn botnliði Sheffield United á útivelli á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.