mið 24. febrúar 2021 20:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Salah var eins og Messi á æfingum"
Mohamed Salah.
Mohamed Salah.
Mynd: Getty Images
Filipe Luis.
Filipe Luis.
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Filipe Luis segist dást að Jose Mourinho en honum hafi ekki tekist að ná fram því besta frá sér.

Luis, sem er hvað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Atletico Madrid, spilaði með Chelsea frá 2014 til 2015 en náði ekki að sýna sínar bestu hliðar undir stjórn Mourinho.

Luis segir að Mourinho hafi ekki tekist að ná því besta út úr sér, rétt eins og með Mohamed Salah.

„Það lítur kannski út eins og við höfum ekki náð sérlega vel saman en ég dáist að honum. Ég vann deildina með honum en hann náði ekki því besta út úr mér, rétt eins og með Salah," sagði Luis við The Guardian.

Salah var í ár hjá Chelsea undir stjórn Mourinho en var svo leyft að fara frá félaginu til Fiorentina og Roma á láni. Hann var svo keyptur til Roma. Frá Roma fór hann til Liverpool þar sem hann hefur verið magnaður. Hann hefur spilað gríðarlega stórt hluverk í frábærum árangri Liverpool síðustu ár. Luis skilur ekki hvers vegna honum var leyft að fara.

„Á æfingum var hann eins og Messi. Hann var eins og Messi, spyrjið hvern sem er," sagði Luis.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner