Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 24. febrúar 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
Stórar breytingar hjá Crystal Palace í sumar?
Enn og aftur siglir Crystal Palace lygnan sjó undir stjórn Roy Hodgson. Hans formúla sem snýst um að vera lítið með boltann, vera aftarlega með vörnina og treysta á skyndisóknir er að skila liðinu í kringum 45 stig á tímabili.

Liðið er með hæsta meðalaldurinn í ensku úrvalsdeildinni og er með elsta stjóra í sögu deildarinnar.

FourFourTwo fjallar um hvort Palace gæti gert stórar breytingar í sumar eða muni halda áfram að treysta á stöðugleika undir stjórn Hodgson. Samningur hans rennur út í sumar.

Það er ekki búið að gleyma innkomu Frank de Boer sem alls ekki gekk að óskum og ljóst að æðstu menn Palace munu íhuga það vel áður en breytingar verða gerðar.

Palace hefur horft til Eddie Howe og Sean Dyche og mögulega er þetta sumarið þar sem tími er á breytingar.

Fjórtán einstaklingar í leikmannahópnum eru að verða samningslausir og nokkrir af þeim eru meðal launahæstu leikmanna liðsins.

Samningslausir í sumar: Jeffrey Schlupp (28), Mamadou Sakho (31), Andros Townsend (29), Christian Benteke (30), Patrick van Aanholt (30), Tyrick Mitchell (21), James McCarthy (30), Nathaniel Clyne (29), James McArthur (33), Joel Ward (31), Scott Dann (34), Martin Kelly (30), Gary Cahill (35), Wayne Hennessey (34).
Athugasemdir
banner