Möguleiki er á að Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verði lengi frá keppni vegna meiðsla á nára.
Henderson meiddist gegn Everton um síðustu helgi og hefur í þessari viku farið í nokkrar rannsóknir vegna meiðslanna.
Fyrstu fréttir á Englandi sögðu að Henderson myndi missa af næstu fimm leikjum Liverpool en The Athletic greinir frá því í dag að möguleiki sé á talsvert lengri fjarveru.

Nýjustu fréttir segja að Liverpool vonist til að Henderson verði frá keppni í fjórar til sex vikur en möguleiki sé á að hann verði lengur frá.
Því er óvíst hvað Henderson nær miklu af lokasprettinum á tímabilinu en frekari fréttir af meiðslunum ættu að berast á næstu dögum.
Athugasemdir