24.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Timm til Viking að láni (Staðfest)




Norska liðið Viking Stavangri sem að Hannes Þ. Sigurðsson leikur með hefur fengið danska sóknarmanninn Mads Timm að láni frá Manchester United í fjóra mánuði. Timm sem að er aðeins 19 ára gamall hefur verið fastamaður í varaliði Englandsmeistaranna en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu gegn Maccabi Haifa í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð. Timm mun leika með Viking þar til í júlí en þá mun hann koma aftur til Manchester United og hefja undirbúning fyrir næsta tímabil. Timm getur einnig leikið á miðjunni en ljóst er að Hannes Þ. Sigurðsson hefur fengið harða samkeppni um framherjastöðuna.
