Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fimm ungar sem gætu sprungið út - „Þakið er svo hátt"
Kvenaboltinn
Hrafnhildur Ása gæti slegið í gegn í sumar.
Hrafnhildur Ása gæti slegið í gegn í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg er efnileg.
Ingibjörg er efnileg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í stórum upphitunarþætti Uppbótartímans fyrir Bestu deild kvenna, sem birtist í morgun var tekinn saman listi yfir fimm unga leikmenn sem gætu sprungið út í sumar. Á þeim lista voru:

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA)
Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
Freyja Stefánsdóttir (Víkingur R.)
Sóley Edda Ingadóttir (Valur)

Hrafnhildur Ása er efst á listanum. Hún hefur mögnuð með Breiðabliki í vetur og kemur til með að fá stærra hlutverk í liðinu en áður.

„Númer eitt er þessi stelpa sem hefur verið stórkostleg. Það er erfitt að gagnrýna þjálfara sem vinnur tvöfalt en það þarf eiginlega að setjast niður með Nik og taka allavega 20 mínútna spjall og spyrja af hverju hún spilaði ekki meira. Það er bara sanngjarnt. Ég hef horft á leiki með henni í vetur og tek um hausinn, 'hvað er að gerast núna?' Þakið er svo hátt," sagði Magnús Haukur Harðarson í þættinum.

Hversu hátt er þakið?

„Ég fékk gæsahúð þegar þú sagðir þetta. Það er svo hátt. Þú borgar þig inn til að sjá svona leikmann."

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Slapp
banner
banner