Fotbolti.net
24.05.04 - 11:02
Hafliði Breiðfjörð

Gerard Houllier rekinn! (Staðfest)

<font color="red">Gerard Houllier rekinn!<font color="black"> (Staðfest)
Canon
Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Liverpool nú klukkan 11:00 var tilkynnt um að félagið hafi ákveðið að slíta samstarfi við Gerard Houllier knattspyrnustjóra félagsins. Á blaðamannafundinum sat Houllier við hlið Rick Parry framkvæmdastjóra félagsins og talaði af tilfinningum um tíma sinn hjá félaginu, þakkaði leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir stuðninginn og fullyrti að þó hann hefði viljað halda starfi sínu þá skilji hann við félagið í góðu.
Houllier sagði:
,,Ég hef fjórar sérstakar minningar sem ég vil taka með mér. Þegar Michael Owen skoraði sigurmarkið gegn Arsenal með vinstri, þegar Gary McAllister var maður leiksins gegn Alaves, mósaík myndin þegar ég var að jafna mig eftir hjarta aðgerð og þegar Steven Gerrard fór með dóttur sína í kringum völlinn á lokadegi leiktíðarinnar."

,,Ég kom hingað fyrir sex árum sem stuðningsmaður Liverpool og ég fer sem enn stærri stuðningsmaður. Þó ég sé farinn frá Liverpool mun Liverpool ekki yfirgefa mig. Ég mun koma aftur og horfa á liðið sem stuðningsmaður."


Houllier kom til Anfield árið 1998 og stjórnaði þá liðinu með Roy Evans fyrst um sinn en tók svo alfarið við liðinu síðar þá leiktíðina. Houllier skilaði þremur bikurum í hús árið 2001. UEFA Cup, FA Cup og Worthington Cup og skilaði svo síðastnefnda bikarnum aftur í hús árið 2003 eftir 2-0 sigur á Manchester United.

Hann hefur hinsvegar átt mjög erfitt uppdráttar alla leiktíðina enda hefur gengi liðsins ekki verið eins og stuðningsmennirnar hafa óskað. Liðið endaði þó í fjórða sæti deildarinnar og vann sér þar með sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Liverpool hafa nú hafið leit að eftirmanni Houllier og eru menn eins og Alan Curbishley stjóri Charlson, Rafael Benitez stjóri Valencia og Kenny Daglish fyrrum stjóri Liverpool orðaðir við liðið þó talið sé að síðastnefnda liðið sé harla ólíklegt auk þess sem umboðsmaður Benitez sagðist í gær ekkert hafa heyrt frá Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.