Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 24. júní 2020 22:21
Aksentije Milisic
Birnir um draumamótherja: SR, unnu þeir ekki Val eða?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Úff, þetta var léttur iðnaður en það er bara gaman að þessu. Þetta var ströggl í byrjun, völlurinn erfiður, mjúkur, loðinn, rosa þurr. Jafnvel búið að henda einhverju harpixi á hann þarna," sagði Birnir Snær Ingason, leikmaður HK, en hann jafnaði metin fyrir HK-inga í síðari hálfleiknum. HK vann leikinn að lokum 2-1 og fer áfram í Mjólkurbikarnum.

Lestu um leikinn: Magni 1 -  2 HK

Birnir var spurður að því hvort það hafi verið erfitt að gíra sig upp í þennan leik eftir stórsigurinn gegn Íslandsmeisturum KR um síðustu helgi.

„Nei nei, mér fannst það svosem ekki. Ég var alveg spenntur fyrir þessum leik, geggjað að fá leik í miðri viku og eftir einn til tvo daga eftir KR leikinn var maður bara kominn niður á jörðina."

Birnir jafnaði leikinn á 68. mínútu eftir sendingu frá Ásgeiri Marteinssyni. Birnir var sáttur með að vera kominn á blað í sumar.

„Já það var geðveikt. Það var kominn tími á það, síðasta tímabil var mjög erfitt og bara geggjað að komast á blað svona snemma á seasoninu."

„Þriðja skiptið sem ég fæ Grenivík í bikarnum hérna úti. Það hefur alltaf verið djöfulsins basl sko, ég held að við séum búnir að vera 1-0 undir í hálfleik í öllum þessum þremur leikjum sem ég hef spilað. Þannig að það er ekkert grín að koma hérna til Grenivíkur."

Að lokum var Birnir spurður að því hvort það væri einhver drauma mótherji í næstu umferð í bikarnum.

„SR, unnu þeir ekki Val eða? Nei nei okey það var tæpt. Ég veit það ekki, bara eitthvað."

Nánar er rætt við Birni í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner