Fotbolti.net
09.07.26 - 09:37
Kári Snorrason

Rúmlega sex milljónir söfnuðust á Selfossi

Aron Fannar fagnar með treyju merktri móður sinni.

Aron Fannar fagnar með treyju merktri móður sinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Um 6.4 milljónir söfnuðust á Selfossi í gær þegar Selfoss og Árborg áttust við í Gatorade bikar Fótbolta.net.

Leikurinn var styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur sem lést á dögunum eftir baráttu við krabbamein.

Að ósk Helgu rann allur ágóði leiksins óskiptur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Skoraði eftir móðurmissinn - „Bara orðlaus“
TENGT EFNI

Skoraði eftir móðurmissinn - „Bara orðlaus“

Leikar enduðu 5-0 fyrir Selfossi og skoraði Aron Fannar Birgisson, sonur Helgu, fimmta mark Selfyssinga. Hann fagnaði markinu með Selfoss-treyju sem var merkt móður sinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.