Amorim biður stuðningsmenn Man Utd afsökunar

Rúben Amorim.

Mynd: EPA

Rúben Amorim.

Mynd: EPA
Rúben Amorim hefur beðist afsökunar á því að hafa ekki talað til stuðningsmanna Manchester United síðan hann var rekinn frá félaginu í janúar.
Amorim tjáði sig ekkert eftir að hann yfirgaf Old Trafford og ákvað að gefa ekki út neina yfirlýsingu. Hann er nú orðinn stjóri ítalska liðsins AC Milan.

TENGT EFNI
Amorim: Þetta er stærri áskorun en Man Utd
Þegar hann var kynntur hjá ítalska stórliðinu sagðist hann enn hungraðri í árangur vegna þess hvernig fór í „síðasta ævintýri hans“.
Þegar hann var spurður hvaða mistök hann hefði gert hjá United sagðist hann sjá eftir því að hafa ekki talað beint út til stuðningsmanna eftir að hafa verið rekinn.
„Það er erfitt að útskýra mistökin því ég þyrfti að gera grein fyrir öllu samhenginu. Það eina sem ég get sagt er að ég lærði mikið og ég gerði nokkur mistök. Ég talaði ekki við stuðningsmenn Manchester United eftir að hafa verið látinn fara og ég sé eftir því en ég var virkilega stoltur af því að hafa verið stjórinn þeirra," segir Amorim.
AC Milan mun mæta United í síðasta undirbúningslek sínum í Póllandi þann 15. ágúst.

????? "I learned a lot, I made some mistakes, and I am sorry for that."
— Sky Sports News (@SkySportsNews) July 8, 2026
Ruben Amorim apologises to Manchester United fans after he was dismissed by the club in January following 14 months at Old Trafford. pic.twitter.com/0RwobU7Gxm