Saibari spilar ekki gegn Frökkum - Áminning Olise stendur

Saibari er kominn með þrjú mörk á mótinu.

Mynd: EPA

Michael Olise.

Mynd: EPA

Facundo Tello.

Marokkó verður án lykilmanns í leiknum gegn Frakklandi í kvöld. Liðin mætast í fyrsta leik 8-liða úrslita HM og verður flautað til leiks klukkan 20:00 í Boston.
Ismael Saibari, sem gekk nýlega í raðir Bayern München, fór af velli vegna meiðsla aftan í læri í fyrri hálfleik þegar Marokkó vann gestgjafa Kanada 3-0 og er ekki klár í slaginn fyrir kvöldið.
Saibari er kominn með þrjú mörk á mótinu og þetta eru vondar fréttir fyrir Marokkó að hann geti ekki tekið þátt í kvöld.

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Sumarið hans Saibari
Frakkar reyndu að fá spjald Olise fellt niður
Úr herbúðum Frakka er það að frétta að þeir gerðu misheppnaða tilraun til að fá áminningu Michael Olise fellda niður. Olise fékk gult spjald í lokin gegn Paragvæ og er kominn á hættusvæði.
Ef Olise fær gult í leiknum í kvöld verður hann í leikbanni í undanúrslitum mótsins. Í ljósi þess að FIFA felldi niður rauða spjaldið sem Bandaríkjamaðurinn Folarin Balogun fékk þá reyndu Frakkar að fá áminningu Olise fellda niður en fengu höfnun.
Franskir miðlar ósáttir við dómaravalið
Argentínskt dómarateymi mun dæma leik Frakklands og Marokkó í kvöld en Facundo Tello verður aðaldómari. Franskir fjölmiðlar gagnrýna dómaravalið en það er heitt í hamsi milli Frakka og Argentínumanna síðan liðin léku til úrslita á HM 2022.
„Ég treysti dómurunum. Andstæðingar okkar eru Marokkómenn en ekki dómararnir," sagði Didier Deschamps landsliðsþjálfari Frakka þegar hann var spurður út í dómarann fyrir leik.