Fotbolti.net
24.06.23 - 20:14
Haraldur Örn Haraldsson

Haddi: Við erum ekki með neitt Evrópusæti

Auglýsing
Haddi: Við erum ekki með neitt Evrópusæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA var svekktur með úrslitin eftir að liðið hans tapaði 2-0 gegn KR í dag.

„Þetta var bara 50-50 leikur sem datt þeirra megin. Ég var ánægður með margt í frammistöðunni, vinnusemin er góð og við vorum að pressa þá rétt. Allt sem við gerðum út á vellinum var flott en í teigunum erum við ekki nógu sterkir, við eigum tvö skot í slá. Meðal annars þegar staðan er 1-0 fyrir KR og við með leikinn þá fáum við dauðafæri þar sem Grímsi setur hann í slánna. Þannig að þetta var 50-50 leikur sem gat dottið báðum megin og því miður skjótum við í slánna og svo fáum við á okkur tvö mörk úr föstum leikatriðum sem ég hef ekki áhuga á, að fá á mig svona mörk og við höfum ekki verið að gera það mikið þannig það er ólíkt okkur og þess vegna vinnur KR leikinn."

KA fjarlægist aðeins 4. sætið sem mun líklega gefa evrópusæti með þessum úrslitum þar sem liðið er í 5. sæti og núna fjórum stigum á eftir FH.

„Það er fullt af liðum í baráttu um þetta. Við erum ekki með neitt evrópusæti, við erum að reyna að berjast að ná því og framundan er bara ótrúlega spennandi og skemmtilegur mánuður. Við þurfum að fara núna til Vestmannaeyjar þar sem við þurfum að standa okkur vel og síðan er bæði evrópukeppni og undanúrslit í bikar. Við erum búnir að koma okkur í góða stöðu en í deildinni er það þannig að við erum að tapa útileikjunum of mikið og við þurfum að gera betur. En það að við séum ekki að ná, við erum bara í keppni við 3-4 lið um evrópusæti, við erum í keppni um að komast í topp 6 og við vitum það alveg. Meðan að frammistaðan er svona, þá hef ég ekki áhyggjur ef við lögum nokkur atriði. Því að ég sá flott KA lið inn á vellinum í dag."

KA mun hefja keppni í Sambandsdeildinni í júlí þar sem þeir munu mæta velska liðinu Connahs Quay.

„Þetta er semi-professional lið bara eins og við erum og ég tel þetta bara vera 50-50, við byrjum heima og við þekkjum ekki vel til þessara liða. Ég hef einu sinni sjálfur spilað við lið frá Wales. Þannig ég er bara þokkalega ánægður með dráttinn, ekki langt ferðalag og lið sem við teljum okkur eiga góðan möguleika á móti."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.