Fotbolti.net
13.07.26 - 23:24
Kristján Hrafn Kristjánsson

Heimir: Alltaf slæmt að missa efnilega leikmenn

Auglýsing
Heimir: Alltaf slæmt að missa efnilega leikmenn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Heimir Guðjónsson og hans menn í Fylki sóttu sterkan sigur Vestur á Ísafjörð fyrr í kvöld. Leikurinn endaði á öruggum 5-2 sigri Fylkis.

Fótbolti.net ræddi við Heimi eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Vestri 2 - 5 Fylkir

Hver eru þín fyrstu viðbrögð?

„Ég er gríðarlega ánægður með leikinn, sérstaklega fyrri hálfleikinn. Við fengum reyndar á okkur dauðafæri í byrjun sem að Óli bjargaði vel. Mörk breyta leikjum, við spiluðum gríðarlega vel, skoruðum góð mörk og vorum flottir. Seinni hálfleikur snerist um að halda stöðunni við byrjuðum ekki nógu vel, fengum á okkur mark. Þetta er erfiður útivöllur og Vestri eru mjög sterkir, ég horfði á leikinn hjá þeim úti gegn Qarabag þar sem þeir voru mjög flottir, þeir eru með mjög gott lið svo ég er sáttur að koma hingað og fá þrjú stig".


Fylkir komu mun sterkari til leiks og keyrðu mikið á Vestra. Var það planið að keyra á þá?


„Já auðvitað, ég horfði á leikinn á fimmtudaginn, sá leikur fór fram í miklum hita, var grasleikur og hærra tempó en menn eru vanir. Við lögðum upp með að pressa þá og mér fannst það ganga vel, þá sérstaklega seinni pressan okkar".


Miðjumaðurinn efnilegi Guðmar Gauti Sævarsson skipti yfir til ÍA frá Fylki í síðustu viku. Það hlýtur að vera slæmt að missa mann eins og hann?

„Jújú það er alltaf slæmt að missa efnilega leikmenn en hann tók ákvörðun um að fara upp á skaga og við óskum honum góðs gengis".


Var aldrei séns að hann gæti farið eftir tímabilið?

„Nei, hann er búinn að vera mikið meiddur í sumar svo ég held að það sé farsælt fyrir alla að hann færi núna".

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.