Skot Sölva á Reykjavíkurborg vakti viðbrögð

„Það er voðalega þægilegt að varpa einni handsprengju inn í þetta og þurfa svo ekki að díla við það.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már sleit krossband í fyrri leik liðanna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Seinni viðureign Víkings og Györ fer fram á eftir.

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, skaut föstum skotum á Reykjavíkurborg eftir leik liðsins gegn ETO Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku.
Elías Már Ómarsson sleit krossband í leiknum eftir að hafa fest sig í grasinu. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, leikmaður kvennaliðs Víkings, sleit krossband á vellinum í síðasta mánuði og þá lenti liðsfélagi hennar, Shaina Ashouri, í því sama í september í fyrra.
Sölvi sagði í viðtali eftir leikinn í gær að honum þætti ekki boðlegt að liðið byði upp á grasið sem er á Víkingsvelli. „Mér finnst að Reykjavíkurborg þurfi aðeins að fara rífa sig upp og hjálpa félögum og gera betur í þessum málum,“ sagði Sölvi meðal annars.

TENGT EFNI
Sölvi um meiðsli Elíasar: Reykjavíkurborg þarf að rífa sig upp og gera betur
Í viðtali við Maté Dalmay í Györ í Ungverjalandi í gær sagði Sölvi félagið hafa fengið viðbrögð við ummælunum.
„Ég fékk engin viðbrögð en Haukur (Hinriksson) framkvæmdastjóri var í yfirvinnu næstu daga eftir þessi ummæli mín. Ég stend enn við þetta, dreg ekkert til baka. Þarna var góður tímapunktur til að benda á þetta og fá fólk til þess að hugsa meira um þetta.“
„Eins og ég sagði er ekki boðlegt að við séum að spila á þessu grasi. Við þurfum að vanda okkur betur við þetta. En það er voðalega þægilegt að varpa einni handsprengju inn í þetta og þurfa svo ekki að díla við það. Við erum með menn í þessu sem taka þetta á sig,“ sagði Sölvi léttur að lokum.