14.07.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Sterkasta lið 14. umferðar - Jói Kalli þjálfari umferðarinnar

Gils Gíslason skoraði tvö í sigri FH og er einn af fjórum fulltrúum FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Ásgeir Helgi Orrason er í vörn úrvalsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djuric er í liðinu í fyrsta sinn í sumar.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Gils Gíslason skoraði tvö í sigri FH og er einn af fjórum fulltrúum FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
14. umferð Bestu deildarinnar lauk í gær en hún hófst reyndar 26. maí! Leikur Stjörnunnar og Víkings var spilaður þetta snemma til að rýmka fyrir Evrópuverkefnum þessara tveggja liða.
Til upprifjunar vann Víkingur 3-1 sigur í umræddum leik og á tvo leikmenn í Sterkasta liði umferðarinnar, það eru Valdimar Þór Ingimundarson og Gylfi Þór Sigurðsson sem báðir skoruðu í leiknum.
Til upprifjunar vann Víkingur 3-1 sigur í umræddum leik og á tvo leikmenn í Sterkasta liði umferðarinnar, það eru Valdimar Þór Ingimundarson og Gylfi Þór Sigurðsson sem báðir skoruðu í leiknum.

TENGT EFNI
Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals

Fjórir leikir voru svo spilaðir á sunnudag. Mesta spennan var á Akureyri þar sem KA vann 3-2 endurkomusigur gegn ÍA. Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvennu og var valinn maður leiksins og þá átti Danijel Dejan Djuric mjög flottan leik og er líka í úrvalsliðinu.
Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk og var með stoðsendingu þegar KR vann 5-2 sigur gegn ÍBV. Hann er leikmaður umferðarinnar.
Freyr Sigurðsson lék listir sínar og skoraði eitt af mörkum Fram í 6-1 sigri gegn botnliði Þórs. Óvæntur markaskorari Fram í leiknum, Haraldur Einar Ásgrímsson, skoraði tvö mörk og er einnig í liði umferðarinnar.
Jóhannes Karl Guðjónsson er þjálfari umferðarinnar eftir 2-0 sigur FH á Val í Kaplakrika. Jökull Andrésson er að stíga upp í liði FH og er aðra umferðina í röð í liði umferðarinnar. Hetja FH var Gils Gíslason sem skoraði tvö mörk og þá er Grétar Snær Gunnarsson einnig í úrvalsliðinu.
Ásgeir Helgi Orrason var maður leiksins þegar Breiðablik vann 2-1 endurkomusigur gegn Keflavík í gær.
Fyrri úrvalslið:

TENGT EFNI
Sterkasta lið 13. umferðar - Eyjamenn á hörkusiglingu

TENGT EFNI
Sterkasta lið 12. umferðar - Kyssti merkið

TENGT EFNI
Sterkasta lið 11. umferðar - Sjö úr stórkostlegri frammistöðu Víkings

TENGT EFNI
Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir

TENGT EFNI
Sterkasta lið 8. umferðar - Vatnhamar í fimmta sinn

TENGT EFNI
Sterkasta lið 7. umferðar - Nýja stjarnan heldur áfram að skína

TENGT EFNI
Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft

TENGT EFNI
Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn

TENGT EFNI
Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti

TENGT EFNI
Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja

TENGT EFNI
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur

TENGT EFNI
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa
Gils Gíslason átti frábæra innkomu í mikilvægum sigri Hafnfirðinga! ???????? #bestadeildin pic.twitter.com/74UDT2O4db
— Besta deildin (@bestadeildin) July 13, 2026

Ásgeir Helgi Orrason er í vörn úrvalsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djuric er í liðinu í fyrsta sinn í sumar.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |


