Fotbolti.net
14.07.26 - 11:17
Innkastið

„Sá Djuric sem maður kannast við“

Lagði upp og sótti vítaspyrnu.

Lagði upp og sótti vítaspyrnu.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

KA vann 3-2 endurkomusigur á ÍA síðastliðinn sunnudag. Þar með batt liðið enda á sex leikja taphrinu. Danijel Dejan Djuric lagði upp annað mark KA og sótti vítaspyrnu sem sigurmarkið kom upp úr.

Danijel var keyptur dýrum dómi frá króatíska liðinu NK Istra skömmu fyrir mót en hefur ekki staðið undir væntingum. Í Innkastinu var rætt um að þarna hefði Danijel sýnt sitt rétta andlit.
Danijel gráti næst - „Grímsi er mesta goðsögnin í KA"
TENGT EFNI

Danijel gráti næst - „Grímsi er mesta goðsögnin í KA"

„Danijel var að njóta sín, hlutirnir gengu upp. Maður sá Djuric sem maður kannast við. Í fyrsta sinn sem maður sér það í KA treyjunni. Hann er búinn að skulda en þarna borgaði hann heldur betur til baka,“ sagði Baldvin Már Borgarsson í Innkastinu.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, hrósaði Danijel sömuleiðis í viðtali eftir leik; „Hann leggur upp frábært mark og svo nær hann í vítið. Vel gert hjá þeim, mikilvægt fyrir sjálfstraustið og frábært fyrir liðið að fá þennan sigur sem við erum búnir að bíða lengi eftir.“

Danijel eltir Erik Tobias Sandberg.

Danijel eltir Erik Tobias Sandberg.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.