Fotbolti.net
14.07.26 - 09:40
Kári Snorrason

Guimaraes ekki til sölu - Estupinan ofarlega á óskalista Villa

Ekki til sölu.

Ekki til sölu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Möguleg endurkoma Estupinan aftur til Englands, Guimaraes ekki til sölu og miðjumaður Roma er eftirsóttur. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Pervis Estupinan, vinstri bakvörður AC Milan, er á óskalista Aston Villa en Lucas Digne er á förum frá félaginu. (Mail)

Newcastle lítur svo á að Bruno Guimaraes (28) sé ekki til sölu, þrátt fyrir að Arsenal telji sig geta fengið brasilíska miðjumanninn á um 50 milljónir punda. (Newcastle Chronicle)

Inter hefur dregið sig úr baráttunni um Trevoh Chalobah (27) þar sem félagið ræður ekki við 30 milljóna punda verðmiðann sem Chelsea hefur sett á enska varnarmanninn. Como hefur þó enn áhuga á honum. (Corriere dello Sport)

Chelsea undirbýr tilboð sem gæti numið allt að 21 milljón punda í Pep Chavarria (28), vinstri bakvörð Rayo Vallecano. (Marca)

Roma hefur hafnað 40 milljóna evra tilboði Atletico Madrid í Manu Koné (25). Manchester United og Liverpool fylgjast einnig með franska miðjumanninum. (Corriere dello Sport)

Aston Villa, Leeds United, Sunderland, Fulham og Brighton hafa öll áhuga á sænska kantmanninum Roony Bardghji (20), leikmanni Barcelona. (Sport/Witness)

Hull og Southampton hafa áhuga á þýska framherjanum Justin Nijnmah (25), leikmanni Werder Bremen. (Bild)

Framganga Thomas Schjelderup (22) með Noregi á HM hefur hækkað verðmiðann sem Benfica setur á kantmanninn í um 43 milljónir punda. Chelsea, Liverpool og Tottenham fylgjast öll með honum. (A Bola)

Barcelona er tilbúið að selja Ferran Torres (26) til að komast hjá því að þurfa að greiða Manchester City um sjö milljónir punda í bónusgreiðslur ef félagið framlengir samning hans. (The Athletic)
Var áður hjá Brighton.

Var áður hjá Brighton.

Canon

Mynd: EPA

Schjelderup eftirsóttur.

Schjelderup eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.