Fotbolti.net
14.07.26 - 12:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hæstu sölurnar í sögunni

Kristian Nökkvi Hlynsson

Kristian Nökkvi Hlynsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fótbolti.net fjallaði í síðustu viku um söluna á Amin Cosic frá KR til norsku meistarana í Viking. Fótbolti.net fékk ábendingar um að hann væri sennilega sá dýrasti sem seldur hefði verið frá Íslandi.

Upplýsingar um kaupverð eru sjaldnast opinberar á Íslandi og svo eru oft ákvæði í kaupsamningum sem stundum eru strax reiknuð inn í kaupverð, en stundum ekki.

Viking er sagt greiða 500 þúsund evrur fyrir Amin sem eru um 72 milljónir íslenskra króna. Njarðvík, þar sem Amin lék áður en hann fór í KR, fær 25% af sölunni og KR fær prósentu af næstu sölu.
Í kjölfar umfjöllunarinnar fengust fleiri ábendingar á þá leið að Kristian Nökkvi Hlynsson, sem Ajax keypti í ársbyrjun 2020 frá Breiðabliki, sé ennþá sá leikmaður sem íslenskt félag hafi fengið hæstu staðgreiðsluna fyrir. Sú upphæð hefur aldrei verið opinberuð og á Transfermarkt er engin upphæð gefin upp.

Aðrir leikmenn sem eru í samtalinu um hæstu sölurnar frá Íslandi eru þeir Eggert Aron Guðmundsson frá Stjörnunni til Elfsborg 2024 (450 þúsund evrur á Transfermarkt) og Gísli Gottskálk Þórðarson frá Víkingi til Lech Poznan 2025 (500 þúsund evrur á Transfermarkt).

Fyrr í vor var umræða um að salan á Fannari Heimissyni, sem fer til KR til Nordsjælland næsta sumar, gæti verið sú hæsta frá Íslandi. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur þá fær KR hærri staðgreiðslu fyrir Amin en út frá raunhæfum aukagreiðslum getur upphæðin sem fæst fyrir Fannar hækkað umtalsvert. Sömu sögu er að segja af sölunni á Alexander Rafni Pálmasyni sem fór til Danmerkur frá KR um mánaðamótin og var metsala hjá KR í fyrra.

Hæsta heildarupphæðin sem íslenskt félag hefur fengið fyrir sölu á leikmanni erlendis er hins vegar ÍA fyrir söluna á Hákoni Arnari Haraldssyni sem var seldur til FCK árið 2019. ÍA samdi um prósentu af næstu sölu og fékk ÍA hundruð milljóna króna þegar Lille keypti Hákon sumarið 2023.

Ef horft er í verðbólgu þá er hægt að horfa t.d. á sölu Breiðabliks á Marel Jóhanni Baldvinssyni til Stabæk um aldarmótin en mbl fjallaði á sínum tíma um að Breiðablik hefði fengið 33 milljónir króna fyrir framherjann. Á núvirði eru það um 114,5 milljónir íslenskra króna.

Stærstu kaupin á íslenskum leikmanni erlendis eru svo kaup Everton á Gylfa Þór Sigurðssyni frá Swansea árið 2017. Everton greiddi Swansea 45 milljónir punda fyrir Gylfa.
Amin Cosic

Amin Cosic

Canon

Mynd: Viking Stavanger

Marel fór á háa upphæð til Stabæk.

Marel fór á háa upphæð til Stabæk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.