Deschamps segir Spánverja sigurstranglegri - Líkleg byrjunarlið

Deschamps á fréttamannafundi.

Mynd: EPA

Luis de la Fuente, þjálfari Spánar.

Mynd: EPA

Deschamps á fréttamannafundi.

Mynd: EPA
Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, spáir stórkostlegri skemmtun í kvöld þegar Frakkland og Spánn leika til undanúrslita á HM. Leikurinn hefst klukkan 19:00.
Spánn vann Frakkland í mögnuðum undanúrslitaleik á EM 2024 en leikurinn endaði 5-4.
„Fortíðin er í fortíðinni. Spánn vann í fortíðinni en ég horfi spenntur til næsta leiks, við viljum fara í úrslitaleikinn," segir Deschamps sem mun láta af störfum eftir mótið, eftir fjórtán ár í starfi.
Athygli vakti á fréttamannafundi að Deschamps sagði Spánverja sigurstranglegri fyrir komandi leik.
„Þeir hafa bara fengið á sig eitt mark í sex leikjum. Við þjálfararnir tveir kunnum varnarleik og með öll gæðin sóknarlega ætti þetta að vera stórbrotinn leikur."
Luis de la Fuente, þjálfari Spánar, var spurður út í ummæli Deschamps um að Spánverjar væru sigurstranglegri.
„Þessi ummæli hafa enga þýðingu. Það eru tvö frábær landslið að fara að mætast. Hvort sem við erum sigurstranglegri eða ekki þá mun það ekki þýða aukna pressu á okkur. Pressan er hvort sem er til staðar því við viljum gera vel fyrir þjóð okkar," segir De la Fuente.

Lesendur telja Frakka mun sigurstranglegri
Í skoðanakönnun sem var á forsíðu Fótbolta.net telja 73% lesenda að Frakkar séu sigurstranglegri fyrir leik kvöldsins en 27% telja að Spánverjar komist áfram.
Spálíkan Metils spáir spænskum sigri, eða 61% líkum. Þar er farið eftir væntanlegum mörk og styrk liðanna í sókn og vörn — öll spáin og aðferðafræðin á metill.is.
Ef stuðlar veðbanka eru skoðaðir má sjá að Epicbet er með stuðulinn 2,45 á sigur Frakka í venjulegum leiktíma en 3,29 á Spánverja. Jafntefli eftir 90 mínútur er á stuðlinum 3,14.
Líklegt byrjunarlið Frakklands:
Maignan; Kounde, Upamecano, Saliba, Digne; Tchouameni, Rabiot; Dembele, Olise, Doue; Mbappe
Líklegt byrjunarlið Spánar:
Simon; Porro, Cubarsi, Laporte, Cucurella; Rodri, Fabian; Yamal, Olmo, Baena; Oyarzabal