Fotbolti.net
13.07.26 - 23:04
Kristján Hrafn Kristjánsson

Badu: Það eru engar afsakanir

Auglýsing
Badu: Það eru engar afsakanir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Vestri tóku á móti Fylki í síðasta leik 13. umferðar Lengjudeildar karla fyrr í kvöld. Fylkismenn mættu mun sterkari til leiks og lokatölur voru 5-2 fyrir Fylki.

Fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leik.

Lestu um leikinn: Vestri 2 - 5 Fylkir

Hver eru þín fyrstu viðbrögð?

„Ég er leiður, það er vont að tapa 5-2":


Vestri steinlágu í fyrri hálfleik og voru 5-0 undir þegar hálfleiks flautið gall, hvað gerðist í fyrri hálfleik?

„Við áttum fyrsta færið sem við nýttum ekki og eftir það gefum við tvö mjög ódýr mörk. Við getum ekki gert svona hluti. Við vitum hverju Fylkir eru góðir í  og við gerðum hluti sem við eigum ekki að gera":


Vestri spilaði fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins á síðasta fimmtudag þar og töpuðu 3-0 gegn Qarabag í Bakú. Liðin mætast aftur á Avis-vellinum á fimmtudaginn, hvernig leggst seinni leikurinn í ykkur?

„Við munum þurfa að þjást mikið og gera eins vel og við getum. Þetta verður þriðji leikurinn á sjö dögum og þetta verður mjög erfitt fyrir strákana. Ég vill sjá mjög mikinn karakter og anda í liðinu, það er mjög erfitt að gera það en ég vona að strákarnir sýni það. Við ætlum ekki að væla yfir neinu, við þurfum bara að spila þennan leik eins vel og við getum".


Hvað er hægt að taka jákvætt úr þessu tapi?

„Strákarnir vita að núna eru engar afsakanir, við vorum aðeins að væla yfir hlutum sem við höfum enga stjórn á og sumir voru með einbeitinguna á hvað þeir geta gert til að hjálpa liðinu. Það breyttist í seinni hálfleik, við vorum kannski ekki að spila vel en við vorum lið".

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.