24.07.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
McCann til Aston Villa (Staðfest)
Enska úrvalsdeildarliðið, Aston Villa, hafa gengið frá kaupum á enska miðvallarleikmanninum, Gavin McCann, frá Sunderland. Forráðamenn Aston Villa þurftu að greiða 2,25 milljónir punda fyrir McCann en hann stóðst læknisskoðun í dag.
McCann kom til Sunderland frá Everton árið 1998 fyrir hálfa milljón punda en hann er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Aston Villa síðan David O´Leary tók við af Graham Taylor í maí sl.
