Fotbolti.net
24.07.26 - 18:41
Ívan Guðjón Baldursson

Dagur Dan í San Diego eftir stutta dvöl í Kanada (Staðfest)

Dagur Dan í San Diego eftir stutta dvöl í Kanada (Staðfest)
Canon

Mynd: San Diego

Dagur Dan Þórhallsson er búinn að skipta um félag í bandarísku MLS deildinni.
Hann skiptir úr CF Montréal yfir í San Diego FC. Hann kveður því Matty Longstaff og félaga í Kanada til að spila með Hirving Lozano og félögum í San Diego.

Liðið inniheldur mikið af leikmönnum frá Skandinavíu þar sem má finna fjóra Dana, einn Finna og einn Norðmann. Meðal annars Amahl Pellegrino sem gerði garðinn frægan með Bodö/Glimt, Anders Dreyer sem raðaði inn mörkunum með Anderlecht og Marcus Ingvartsen sem lék yfir 100 leiki í efstu deild þýska boltans.

San Diego er aðeins með 17 stig eftir 16 umferðir á deildartímabilinu. Dagur Dan mun berjast við Willy Kumado og Oscar Verhoeven um hægri bakvarðarstöðuna.

San Diego borgar hálfa milljón dollara til að kaupa Dag, en sú upphæð getur hækkað um 125 þúsund dollara vegna árangurstengdra aukagreiðslna.

Dagur er 26 ára gamall og býr yfir góðri reynslu úr MLS deildinni eftir að hafa upprunalega skipt til Orlando City fyrir þremur og hálfu ári síðan.

Dagur Dan í San Diego eftir stutta dvöl í Kanada (Staðfest)
Canon

Mynd: Matthías Már

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.