24.07.26 - 15:37
Kári Snorrason

Freyr tekur á móti Man Utd - Svona eru byrjunarliðin

Freyr er stuðningsmaður Liverpool.

Mynd: EPA

Annar æfingaleikur United á undirbúningstímabilinu.

Mynd: EPA

Í byrjunarliði United.

Mynd: EPA

Freyr er stuðningsmaður Liverpool.

Mynd: EPA
Freyr Alexanderson og lærisveinar hans í Rosenborg taka á móti Manchester United í æfingaleik klukkan 16:00.
Leikurinn fer fram á Lerkendal, heimavelli Rosenborg, en þetta er annar æfingaleikur United á undirbúningstímabilinu.
Rosenborg er á miðju tímabili og hefur unnið báða leiki sína í norsku Eliteserien undir stjórn Freys.

TENGT EFNI
Freysi fékk já frá syninum út af leiknum gegn Man Utd
Leikurinn var skipulagður áður en Freyr tók við. Hann ræddi um leikinn í útvarpsþættinum Fótbolta.net í síðasta mánuði.
„Það er svolítið skrítin tilhugsun að fara í þetta verkefni, ekki beint ákjósanlegt. En auðvitað er spenna að fá Manchester United í bæinn, þannig ég ætla ekki að væla yfir því. Það er búið að skipuleggja þetta, þetta er á dagskránni og ég geri það besta úr stöðunni."
„Ég held þetta sé ekki ákjósanlegt að mörgu leyti, en þetta verður gaman og fékk son minn til að samþykkja það að ég gæti farið til Rosenborg. Það hjálpaði mér í þeirri ákvörðun,“ sagði Freyr, sem er stuðningsmaður Liverpool, í útvarpsþættinum Fótbolta.net í síðasta mánuði.
Leikmenn sem tóku þátt á HM eru ekki til taks hjá United þar sem þeir eru í fríi en liðið er engu að síður stjörnum prýtt.
Leikurinn er sýndur á MUTV en hægt er að nálgast stöðina í gegnum streymisveituna Livey.
Byrjunarlið Man Utd: Vítek (m); Heaven, Maguire, Yoro, Shaw, Andrey Santos, Mount, Dorgu, Mbeumo, Zirkzee, Lacey
Byrjunarlið Rosenborg: Wahlstedt (m); Pereira, Volden, Mortensen, Nemcik, Fossum, Bomholt, Selnæs, Chiakha, Reitan-Sunde, Sashah

Leikurinn fer fram á Lerkendal.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson