Fotbolti.net
24.07.26 - 13:30
Kári Snorrason

Fyrsti útileikur FH í rúman mánuð

Spilað fimm heimaleiki í röð.

Spilað fimm heimaleiki í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH sækir Fram heim í Úlfarsárdal á sunnudag í Bestu deild karla. Um verður að ræða fyrsta útileik Hafnarfjarðarliðsins í rúman mánuð.

Grasið á Kaplakrikavelli var ekki tilbúið í upphafi tímabils og hóf því FH deildina á fjórum útileikjum í röð. Fyrsti heimaleikur liðsins var einmitt gegn Fram þann 3. maí.
Síðasti útileikur liðsins var 14. júní gegn Keflavík og var það jafnframt fyrsti sigur FH á tímabilinu.

Síðan þá hefur liðið unnið einn leik til viðbótar og gert fjögur jafntefli. FH er því með lengstu taplausu hrinu deildarinnar, alls sex leikir í röð án taps.

Næstlengstu taplausu hrinuna á Fram, andstæðingur FH á sunnudag, sem hefur leikið fjóra deildarleiki í röð án þess að tapa.

16. umferð Bestu deildarinnar
þriðjudagur 26. maí
KR 3-1 Valur (spilaður í maí vegna þáttöku Vals í Evrópukeppni)

föstudagur 24. júlí
20:00 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)

sunnudagur 26. júlí
19:15 ÍA-Stjarnan (ELKEM völlurinn)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)

mánudagur 27. júlí
18:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
19:15 KA-Þór (Greifavöllurinn)
Fram vann 4-3 sigur á FH í fyrri leik liðanna.

Fram vann 4-3 sigur á FH í fyrri leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.