23.07.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvaða leikmenn á Liverpool að sækja? - „Koma aldrei báðir"

Jeremy Jacquet er ungur og efnilegur miðvörður.

Mynd: Liverpool

Bradley Barcola.

Mynd: EPA

Rayan er spennandi kantmaður sem Iraola þekkir vel.

Mynd: EPA

Adam Wharton.

Liverpool hefur fjárfest í tveimur leikmönnum í sumar - Jeremy Jaqcuet og Victor Munoz - en það er nóg eftir af glugganum.
Fotbolti.net ræddi við tvo Liverpool stuðningsmenn, Hrafn Kristjánsson og Magnús Hauk Harðarson, og spurði þá út í leikmannagluggann sem er núna í gangi.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 18. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Hvaða leikmenn á Liverpool að sækja í sumar? Liverpool þarf til dæmis að fylla í skarð Mohamed Salah sem er einn besti leikmaður í sögu félagsins.
„Persónulega myndi ég vilja sjá Rayan frá Bournemouth koma inn á hægri kantinn í stað Salah og Bradley Barcola á vinstri en þeir koma aldrei báðir inn því miður," segir Hrafn.
„Á miðjunni er ég spenntur fyrir Adam Wharton, Alex Scott og jafnvel Manu Kone en ekki búinn að gera upp við mig hvern þeirra mig langar mest í. Alex Scott var stórkostlegur seinni hluta tímabils og er mjög áhugaverður kostur. Held að Bouaddi sé frátekinn fyrir Real Madrid eða PSG.“
„Í hægri bakverðinum er ég eiginlega ekki viss. Sýnist allir álitlegir farnir annað eða vonlaust að sækja í þá. Ein þrautalausn væri hreinlega að sannfæra Curtis Jones um að hann fái bara alltaf að spila ef hann sættir sig við að búa sér til nýjan feril þar. Finnst hann nefnilega mjög efnilegur í þeirri stöðu þar sem hann getur 'flotið' inn á miðjuna þegar við á," segir Hrafn.
Magnús Haukur leggur mesta áherslu á að styrkja miðjuna. „Það þarf að kaupa sexu en síðasta sexan sem Liverpool keypti var Fabinho og var það fyrir átta árum. Einnig þarf að auka breiddina fram á við."
Hann er einnig mjög spenntur fyrir Barcola. „Ég er spenntur fyrir Barcola, annars treysti ég þeim sem vita meira en ég um þessi mál að kaupa rétt inn."

TENGT EFNI
Liverpool aftur í þungarokkið? - Draumakaup og breytt lið