Fotbolti.net
24.07.26 - 09:32
Kári Snorrason

HM-fari sakaður um kókaínneyslu

Lék þrjá leiki með Áströlum á HM í sumar.

Lék þrjá leiki með Áströlum á HM í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Ástralski landsliðsmaðurinn Cristian Volpato er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna eftir að kókaín greindist í prófi sem lögregla tók af honum í Sydney.

Volpato, sem lék með Ástralíu á HM í sumar, var stöðvaður tvisvar sama kvöldið fyrir of hraðan akstur.
Fyrst var hann stöðvaður á 94 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraði er 60 km/klst. Hann lét sér það þó ekki að kenningu verða því tveimur tímum síðar var hann stöðvaður á 109 kílómetra hraða á sama vegarkafla.

Hann mældist ekki með áfengi í blóðinu en munnvatnssýni gaf jákvæða niðurstöðu fyrir kókaíni. Hann hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði á meðan beðið er niðurstöðu úr frekari rannsókn.

Volpato er 22 ára miðjumaður og leikur fyrir Sassuolo. Hann hefur leikið fyrir yngri landslið Ítalíu en er fæddur og uppalinn í Ástralíu. Hann er því með tvöfalt ríkisfang og ákvað að spila fyrir Ástralíu fyrr á árinu.

Hann spilaði þrjá leiki fyrir Ástralíu á HM þar sem liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum gegn Egyptalandi eftir vítaspyrnukeppni.
Ákvað að spila fyrir Ástralíu fyrr á árinu.

Ákvað að spila fyrir Ástralíu fyrr á árinu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.